Umhverfisstefna

Umhverfisstefna Kokkanna veisluþjónustu

Kokkarnir veisluþjónusta leggur ríka áherslu á umhverfisvernd og leitast við að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar eins og kostur er. Við leggjum jafnframt áherslu á að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins í umhverfismálum og koma fram í lögum, reglugerðum, starfsleyfum og öðrum viðeigandi kröfum.

Umhverfissjónarmið eru höfð að leiðarljósi í starfsemi Kokkanna, meðal annars við innkaup, val á hráefni, val á birgjum, orkunotkun, meðhöndlun úrgangs og vörudreifingu. Við leitum stöðugt leiða til að draga úr sóun og bæta umhverfisárangur starfseminnar.

 

Orkunotkun

Starfsfólk er hvatt til að sýna aðgát í orkunotkun og nýta orku á hagkvæman hátt. Lögð er áhersla á að slökkva ljós, tölvur, tölvuskjái og önnur rafmagnstæki þegar þau eru ekki í notkun, sérstaklega í lok vinnudags.

Jafnframt er leitast við að nýta tæki og búnað með hagkvæmum hætti og forðast óþarfa orkunotkun.

 

Mengun og frárennsli

Kokkarnir veisluþjónusta leitast við að draga úr mengun sem hlýst af starfseminni. Þetta tekur meðal annars til frárennslis, úrgangs og loftmengunar.

Gerðar eru viðeigandi ráðstafanir til að draga úr álagi á frárennsliskerfi, meðal annars með síum á frárennsli þar sem við á. Jafnframt er leitast við að lágmarka úrgang frá starfseminni og tryggja að honum sé safnað og honum fargað eða komið til endurnýtingar með viðeigandi hætti.

Við vörudreifingu er leitast við að nýta ferðir sem best og sameina sendingar í bíla eftir því sem kostur er. Með því er leitast við að draga úr óþarfa akstri og eldsneytisnotkun.

 

Matarsóun

Kokkarnir veisluþjónusta leggur áherslu á að lágmarka matarsóun og hámarka nýtingu hráefna.

Áður en vörur eru pantaðar er farið yfir birgðastöðu og tekið mið af fjölda gesta og fyrirhugaðri framleiðslu. Með markvissri birgðastýringu og skipulagningu er leitast við að koma í veg fyrir óþarfa innkaup og draga úr matarsóun.

Við leggjum áherslu á að matvæli séu meðhöndluð, geymd og kæld með réttum hætti þannig að þau haldist í góðu ástandi og séu nýtt áður en þau renna út.

 

Hráefni og innkaup

Við val á hráefni er leitast við að velja innlenda framleiðslu eftir því sem kostur er. Jafnframt er lögð áhersla á að nýta lífrænt vottuð og umhverfisvæn hráefni þar sem slíkt er mögulegt.

 

Við leitumst við að bjóða upp á fjölbreytta vegan- og grænmetiskosti í matargerð okkar.

Við val á birgjum og vörum er meðal annars horft til gæða, uppruna, umhverfissjónarmiða, umbúða og möguleika á að draga úr sóun.

 

Umbúðir og endurnotkun

Kokkarnir veisluþjónusta notar margnota umbúðir og búnað eftir því sem kostur er, með það að markmiði að draga úr notkun einnota vara og minnka úrgang.

Við notum umhverfisvottaðar umbúðir sem henta fyrir matvæli og leitumst við að forðast óþarfa einstaklingspakkningar, svo sem kaffihylki og smærri einingapakkningar, þegar aðrir kostir eru í boði.

Við vörudreifingu eru notaðir margnota frauðkassar og plastkassar. Með þessu er hægt að draga úr notkun einnota umbúða og stuðla að endurnotkun.

Við erum jafnframt vakandi fyrir tækifærum til endurnotkunar og leitum leiða til að lengja líftíma umbúða, búnaðar og annarra rekstrarvara.

 

Flokkun og meðhöndlun úrgangs

Kokkarnir veisluþjónusta leggur áherslu á markvissa flokkun og ábyrga meðhöndlun úrgangs frá starfseminni. Úrgangur er flokkaður eftir því sem við á, með það að markmiði að draga úr úrgangsmagni og stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu.

Matvælaúrgangur er safnaður sérstaklega og nýttur sem dýrafóður. Með þessu er leitast við að hámarka nýtingu matvæla og draga úr því magni lífræns úrgangs sem annars færi til förgunar.

Við fylgjum þeim reglum og kröfum sem gilda um flokkun, söfnun og meðhöndlun úrgangs.

 

Hreinlætis- og hreinsivörur

Kokkarnir veisluþjónusta leggur áherslu á notkun umhverfisvænna og umhverfisvottaðra hreinsivara.

Hreinsivörur okkar koma frá Tandri, sem býður upp á umhverfisvottaðar hreinsivörur og vinnur markvisst að því að auka hlutdeild slíkra vara.

Við vinnum náið með Tandri að fræðslu og leiðbeiningum til starfsfólks, meðal annars um rétta notkun hreinsiefna, skömmtun og leiðir til að lágmarka notkun þeirra án þess að það komi niður á kröfum um hreinlæti og matvælaöryggi.

 

Fræðsla og stöðugar umbætur

Við teljum að þátttaka og vitund starfsfólks skipti miklu máli í umhverfisstarfi fyrirtækisins. Starfsfólk er því upplýst um umhverfisstefnu Kokkanna og hvatt til að leggja sitt af mörkum til að draga úr sóun, orkunotkun og óþarfa notkun auðlinda.

 

Kokkarnir veisluþjónusta leitast við að fylgjast með þróun á sviði umhverfismála og leita stöðugt leiða til að bæta verklag, draga úr umhverfisáhrifum og auka sjálfbærni í starfseminni.

 

Markmið

Með ofangreind atriði að leiðarljósi er markmið Kokkanna veisluþjónustu að reka starfsemina með ábyrgum og umhverfisvænum hætti, lágmarka sóun og neikvæð umhverfisáhrif og stuðla að sem bestri nýtingu auðlinda.

Umhverfisstefnan er hluti af daglegri starfsemi Kokkanna og er stefnt að stöðugum umbótum í umhverfismálum.