Skilmálar

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Furðufiskar ehf., kt. 650702-2710, Flatahrauni 27, 220 Hafnarfirði. VSK númer: 76011.

 

Almennt

Furðufiskar ehf., kt. 650702-2710 rekur netverslunina kokkarnir.is og áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

 

Greiðsluform

kokkarnir.is býður upp á að greitt sé fyrir vörur með kredit- og debetkortum. Kortafærslur fara fram á öruggri greiðslusíðu SaltPay. Hafi kaupanda verið gefið upp rangt verð, t.d. vegna mistaka við innslátt eða bilunar í vinnslukerfi, þegar hann staðfesti kaup á vöru verður honum þegar í stað tilkynnt um verðbreytingu og gefinn kostur á leiðréttingu eða að hætta við kaupin.

 

Verð

Öll verð á veitingum eru í íslenskum krónum og innihalda 11% vsk. Vinsamlegast athugið að verð á netinu geta breyst án fyrirvara og öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

 

Skila- og endurgreiðsluréttur

Enginn skila- eða endurgreiðsluréttur er á veitingum nema komi upp galli. Skilyrði fyrir endurgreiðslu er að söluaðila verði gert viðvart um gallann eins fljótt og auðið er.

 

Afhending vöru

Kokkarnir veisluþjónusta er til húsa að Flatahrauni 27 í Hafnarfirði. Kaupandi sækir vörur þangað á opnunartíma. Lokað er á sunnudögum.

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 

Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Rísi mál vegna þessa skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Vefurinn kokkarnir.is notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á kokkarnir.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur