Hvalkjöts piparsteikur.
Fyrir 4
800 gr. hrefnu piparsteik.
Kjötið er skorið í 200 gr. steikur og létt steikt á pönnu ca 3-4. mín á hvorri hlið.
Gott að bera fram með piparsósu, bakaðri kartöflu og fersku salati.
Mikið af frábæru meðlæti er að finna undir Heima er bezt
Hvalkjöts pottréttur.
Innihald:
800 gr hrefna gúllas.
2 stk. laukar.
150 gr. sveppir.
2 stk. rauð paprika.
Salt og pipar.
Nautakjötskraftur.
6 dl vatn.
Aðferð.
Laukurinn er skrældur og síðan skorinn í fína báta, sveppirnir eru skornir í fernt og paprikan er skorin í grófa teninga. Djúp panna er hituð vel með olíu hvalkjötið steikt fyrst síðan er grænmetinu blandað saman við kryddað með salti og pipar. Þegar þetta er búið að krauma örlítið er vatninu helt úti ásamt ca einni msk. af krafti síðan þarf að smakka til. Látið sjóða í 2-3 mín. Þykkt með hveiti og vatni sem búið er að hræra saman. Borið fram með kartöflumús og hrásalati.