Verslun

Smálúða með grænmeti í soya og sítrónu

Fyrir 4

1 kg smálúða með roði

200 gr Hveiti

2 stk Kínakálsblöð

4 stk vorlaukar

1/4 stk græn paprika

1/4 stk Gul paprika

1 stk Engifer þumall

1/3 Chili

2  stk hvítlauksrif

Safi úr tveimur sítrónum

4 msk Soya sósa

100 gr ósaltað smjör

2 stk Gulrætur

Olía til steikingar

Munið að nota frekar nýtt íslenskt grænmeti frekar en innflutt!

Aðferð:

Undirbúið grænmetið. Skerið gulræturnar í ræmur og kínakálið fínt sérstaklega grófa hlutan og svo má vera grófara þegar þynnri parturinn kemur. Snyrtið blaðlaukinn og skerið í litla bita. chili er hreinsað og skorið smátt. Skerið paprikuna í strimla. Skerið lúðuna í hæfilega bita og veltið upp úr hveitinu. Skrælið engiferið og rífið það í rifjaárni. Skerið hvítlaukinn fínt. Búið til blöndu úr sítrónu safanum, soya sósunni, engiferinu og hvítlauknum. Nú er allt tilbúið fyrir loka hnykkinn. Hitið pönnu og setjið olíuna á. Steikið lúðuna á annari hliðinni þar til hún verður gullinbrún og snúið henni þá við. Setjið grænmetið því næst út á og steikið aðeins og hellið síðan blöndunni yfir allt saman. Þegar þetta er búið að malla í c.a. 3 mínútur setjið þá smjörið í litlum bitum út í og látið bráðna. Nú er allt klárt. Gott er að setja smá kryddjurtir yfir í restina til skrauts. Passar mjög vel að hafa hrísgrjón með þessum rétti.